17.3.2015 | 08:42
Ísland er enn umsóknarríki
Á heimasíðu Evrópusambandsins nú 17. mars má sjá að Ísland telst enn umsóknarríki ("candidate state").
Þetta kemur sér vel fyrir Ísland. Evrópusambandið veit sem er að hlé er á viðræðum og að núverandi ríkisstjórn Íslands vill ekki halda þeim áfram. Það fylgja því hins vegar engar kvaðir að vera áfram listað sem "candidate state", en þetta auðveldar Íslandi að taka upp þráðinn að nýju, ef og þegar áhugi verður fyrir hendi.
![]() |
Dauðadæmt án pólitísks vilja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |